Carpe Noctem - Söngurinn Sem Ómar Á Milli Sstjarnanna
Übersetzter Songtext von Carpe Noctem - Söngurinn Sem Ómar Á Milli Sstjarnanna ins
- 44 Hits
- Veröffentlicht 2024-02-22 00:00:00
- 0 Kommentare
- 0 likes
- Carpe Noctem
- Söngurinn Sem Ómar Á Milli Sstjarnanna
- Übersetzung von: panzas
Söngurinn Sem Ómar Á Milli Sstjarnanna
Þú vildir ekki hlusta á neitt nema
Sönginn sem ómar á milli stjarnanna
Allt annað var aðeins hjóm
Sem þú leiddir hjá þér eins og vondan draum
Þú vildir ekki einu sinni
Hlusta á eigin hjartslátt
Sem drukknaði og hvarf
í ofbeldisfullum skarkala himinhvolfsins
Með sverði dróstu línu í sandinn
á milli þín og mannanna
Og við horfðumst í augu yfir
órjúfanleg landamærin
Þú fylltir bikar þinn af stöðnuðu vatni
Og drakkst og harmaðir vonbrigðin
Sem ásækja þig sem draugur
Sem ásækja þig sem illur draugur
Með hatrömmum rúnum fláðirðu
Holdið sem fangelsaði þig
Með ólgandi þulum ófstu þér
Nýja hlekki, þyrnótta
Með skjálfandi höndum
Rótaðirðu í rakri jörðinni
Og sáðir formælingum
þinni eigin fordæmingu
Þar sem þú lagðist í moldina
Og lofaðir sársaukann
Og þjáninguna sem þú ræktaðir
Eins og illgresi innra með þér
Þar sem þú lagðist í moldina
Og lofaðir sársaukann og þjáninguna
Uxu harðgerð villiblóm
Þú lofsamaðir sársaukann og þjáninguna
Þessi veröld er gröf sem bliknar í samanburði við
Sönginn sem berst mér úr tóminu
Sagðirðu og hörfaðir í ylmjúkt myrkrið
Hvarfst mér frá augum fyrir fullt og allt
Por el momento, a nadie le gusta este artículo
Kommentare
Hey! Du hast Glück, noch niemand hat diesen Artikel kommentiert. Sei der Erste und hinterlasse deinen Kommentar.
Du musst registriert sein, um Kommentare zu hinterlassen
Melden Sie sich mit Ihrem Benutzerkonto an und genießen Sie alle Vorteile.
Erstellen Sie Ihr Konto ó Einloggen / Anmelden